Frétt tekin af heimasíðu Grundarfjarðarbæjar.

Miðvikudaginn 7. nóvember fékk Leikskólinn Sólvellir í Grundarfirði afhentan Grænfánann sem er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um góða umhverfismennt og umhverfisstefnu í skólum. Fánann fá skólar í kjölfar verkefna sem er ætlað að efla vitund nemenda, kennara og annarra starfsmanna skólans um umhverfismál. Rannveig Thoroddsen frá Landvernd kom og afhenti fánann. Við það tilefni komu foreldrar og aðrir gestir til að vera viðstaddir. Nemendur úr 1. bekk komu einnig en þeir hafa unnið að þessu verkefni þegar þeir voru í leikskólanum. Rannveig afhenti elstu nemendum leikskólans fánann og fóru þau með hann út þar sem honum var flaggað á flaggstönginni.

Til að fræðast meira um Grænafánann er hægt að fara inn á heimasíðu hans http://www.landvernd.is/graenfaninn/.

Deila