Dagur umhverfisins er á næsta leyti og þá er tilefni til þess að taka á móti vorinu og fara út að hreyfa sig og fegra nærumhverfið. Þann 25. apríl ár hvert er Degi umhverfisins fagnað víða um land, en dagurinn er tileinkaður umhverfinu sem hvatning til að tengjast náttúrunni og efla umhverfisvitund. Meðal þess sem landsmenn munu gera er að leggja leið sína út í náttúruna og tína rusl.

Sveitarfélögin á Snæfellsnesi hvetja íbúa til þess að njóta náttúrunnar og plokka helgina 24.-25. apríl. Í Snæfellsbæ, Stykkishólmi og Grundarfirði verður hægt að nálgast poka undir rusl.

Þegar haldið er út að plokka er gott að hafa eftirfarandi í huga:

  • Velja sér ákveðið svæði til að plokka – hvort sem það er í kringum húsið, í hverfinu, eða falleg gönguleið
  • Vera vel búin eftir veðri og með góða hanska, jafnvel ruslatínu
  • Virða samkomutakmarkanir og ekki hópa saman, aðeins plokka með “búbblunni”
  • Koma ruslinu á gámasvæðin eða þar sem sveitarfélögin taka við ruslinu
  • Gæta varúðar og brýna fyrir börnum að láta nálar og aðra hættulega hluti eiga sig og ávallt að láta fullorðna vita ef að slíkt finnst.
  • Njóta náttúrunnar og samverunnar með fjölskyldunni

Frekari upplýsingar um Dag umhverfisins má finna á síðum sveitarfélaganna. Einnig er hægt að hafa samband við verkefnastjóra umhverfisvottunar, Guðrúnu Magneu, á gudrun@nsv.is eða í síma 849-2486.

Deila