Í tilefni af degi íslenskrar náttúru, sem haldinn er hátíðlegur um allt land í dag, er hér formlega opnuð ný og endurbætt heimasíða Framkvæmdaráðs Snæfellsness. Eftir langa bið verður heimasíðan uppfærð reglulega með nýjustu fréttum af umhverfisvottun Snæfellsness og fleiru henni tengdu.

Framkvæmdaráð Snæfellsness hvetur alla til þess að fagna degi íslenskrar náttúru. Bæði með því að vafra um á nýju heimasíðunni sem hér lítur dagsins ljós og taka þátt í atburðum sem í boði eru í tilefni dagsins. Dagskrá er að finna á vef umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.

Til hamingju með daginn!

Deila